MB og Háskólinn á Bifröst eiga í góðu samstarfi og núna á vorönn er kenndur áfangi sem heitir Hagfræði og Markaðsfræði. Um er að ræða samstarfsverkefni MB og Háskólans á Bifröst þar sem tveir af þremur kennurum koma frá Bifröst. Áfanginn skiptist upp í þrjá hluta, almenna markaðsfræði, stafræna markaðsfræði og markaðsaðstæður út frá hagfræðinni. Kennt er í fjarnámi en nemendur mæta í verkefnatíma alla önnina.
Kennararnir Ragnar Már Vilhjálmsson og Bárður Örn Gunnarsson eru báðir kennarar á Bifröst en tengjast einnig atvinnulífinu og því fá nemendur bæði góða tengingu við háskólaumhverfið og atvinnulífið. Helga Karlsdóttir kennari í MB, kennir hluta af námskeiðinu og hefur umsjón með áfanganum.