Starfsbraut

Bragi Þór SvavarssonFréttir

Starfsbraut MB hefur verið að færa út kvíarnar og þannig stækkað í samræmi við fjölgun nemenda á brautinni. Hafa nemendur unnið að því að útbúa rými við hlið starfsbrautarstofunnar til að gera það að hlýlegu og notalegu lærdómsrými. Það lék algjörlega í höndum nemenda að setja saman Ikea húsgögn sem samvinnuverkefni og koma sér saman um uppröðun, skipulag og útlit rýmisins. Yfirmarkmið brautarinnar er að öllum líði vel samhliða því að eflast og þroskast á eigin forsendum. Umsjón og kennslu á brautinni annast Elín Matthildur og Rósa Konný en einnig koma fleiri kennarar að stökum tímum