Þrír nemendur, Bergþóra Lára Hilmarsdóttir, Hera Sól Hafsteinsdóttir og Stefnir Ægir Berg Stefánsson, útskrifuðust með stúdentspróf frá Menntaskóla Borgarfjarðar þann 20. desember síðastliðinn. Þau luku öll námi af náttúrufræðibraut.
Á myndinni má sjá Bergþóru Láru ásamt Lilju S. Ólafsdóttur aðstoðarskólameistara