Westside

Bragi Þór SvavarssonFréttir

Á fimmtudaginn sl. lauk hinu árlega WestSide sem haldið var  hér Borgarnesi og allur undirbúningur á hendi NMB. 
West Side er samstarfsverkefni Menntaskóla Borgarfjarðar, Fjölbrautaskóla Vesturlands og Fjölbrautaskóla Snæfellinga og hefur staðið um nokkurra ára skeið. Nemendur skólanna, keppa og gleðjast saman í  fótbolta, körfubolta, bandý og blaki og loks var spurningakeppni.
Það bar helst til tíðinda að  MB bar sigur úr býtum og hefur bikarinn til varðveislu til haustins 2025. Langþráður sigur og mikil gleði með þennan áfanga. 
Um kvöldið var haldið ball í MB sem fór afar vel fram og voru nemendur sér og skólanum til sóma!