Málstofa í Lokaverkefnum

Í síðustu viku hittust nemendur í áfanganum Lokaverkefni á málstofu þar sem þeir kynntu rannsóknarspurningar sínar og fyrstu hugmyndir að verkefnum vetrarins. Það var ánægjulegt að sjá hversu mikill metnaður og áhugi einkennir hópinn og hversu fjölbreytt viðfangsefnin eru.

Í áfanganum fá útskriftarnemendur tækifæri til að kafa ofan í efni sem vekur áhuga þeirra með því að skrifa heimildaritgerð eða framkvæma rannsókn á afmörkuðu viðfangsefni. Á sama tíma þjálfast þeir í akademískum vinnubrögðum, meðal annars við öflun og mat heimilda, fræðileg skrif, gagnrýna hugsun og framsetningu efnis í kynningum.

Málstofan gaf nemendum tækifæri til að deila hugmyndum sínum, ræða verkefnin sín við samnemendur og kennara og fá uppbyggilega endurgjöf á fyrstu stigum vinnunnar. Rannsóknarspurningarnar sem kynntar voru sýna vel þann fjölbreytta áhuga sem býr í nemendahópnum og gefa fyrirheit um mörg áhugaverð verkefni.

Nú tekur við áframhaldandi vinna við rannsóknir og ritun, og það verður gaman að fylgjast með þróun verkefnanna næstu vikur. Við hlökkum til að sjá afrakstur þessa metnaðarfulla starfs í byrjun desember.