BÓKF1IN05 – Grunnáfangi í bókfærslu

Námsgrein: Bókfærsla

Heiti
Grunnþættir bókfærslu
Þrep
1
Einingafjöldi
5
Undanfari
Enginn
Í boði
Vor

Lög er áhersla á að nemendur þekki helstu reglur um tvíhliða bókhald og skilji grundvallarhugtökin eignir, skuldir, gjöld og tekjur. Nemendur eiga að öðlast leikni í almennum færslum dagbókar og uppgjör reikninga í rekstrar- og efnahagsreikningi. Eftir áfangan eiga nemendur að vera búnir að fá almenna þekkingu og grunvallarhæfni í að færa og gera upp einfalt bókhald.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grundvallarhugtökum tvíhliða bókhalds
  • bókhaldshringrásinni
  • flestum reikningum sem teljast til grunnreikninga í fjárhagsbókhaldi
  • uppgjöri í efnahags- og rekstarreikngs

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • færa einfaldar dagbókafærslur með tilgreindum reikningum
  • nota upplýsingar hverning lagfæra á bókhaldið með hliðsjón af einföldum athugasemdum
  • nota upplýsingar til að geta sett upp rekstrar- og efnahagsreikning í lok reikningstímabils
  • reikna vexti, vsk, álagningu oþh

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • útskýra grunnreikninga í fjárhagsbókhaldi
  • skýra með dæmum einfaldar dagbókafærlsur með fyrirliggjandi upplýsingum
  • útskýra tilgang uppgjörs á rekstrar- og efnahagsreikningi

Námsmat

Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstímann.