DANS1GA04 – Danska, undirbúningsáfangi

Námsgrein: Danska

Heiti
Danska, grunnur
Þrep
1
Einingafjöldi
4
Undanfari
Enginn

Markmið áfangans er að nemendur auki grunnþekkingu sína í dönsku. Áhersla er á hlustun, talæfingar, lestur og ritun stuttra texta.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hvernig tungumálið nýtist honum.
  • grunnorðaforða talaðs og ritaðs máls
  • málfræði tungumálsins.
  • inntaki ýmiss konar texta, t.d. blaðagreina, smásagna og kvikmynda.
  • notkun stafrænna miðla

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • stuðla að eigin framförum í tungumálinu.
  • nota hraðlestur og ítarlestur og lesa sér til ánægju og fróðleiks.
  • semja stutta texta um ýmis málefni.
  • nota tölvur til að afla sér fróðleiks (og miðla) um afmarkað efni, orð eða málfræðilega þætti.
  • taka þátt í einföldum samtölum.
  • skilja skýrt og einfalt talmál

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • gera sér grein fyrir hvað dönskukunnátta hefur að segja fyrir hann.
  • ná aðalatriðum úr fjöl- og myndmiðlum og fylgjast með einföldum frásögnum og erindum sér til gagns.
  • halda uppi kurteisissamtölum og ráða við samtöl við algengar aðstæður, t.d. á brautarstöð, við pylsuvagn eða á veitingahúsi.
  • afla sér upplýsinga og skrifa um áhugamál sín
  • nota hjálpartæki á netinu netinu, málfræðivefi, orðabækur og þýðingavélar
  • geti lesið og endursagt efni stuttra greina, t.d. blaðagreina
  • miðla þekkingu sinni og hugmyndum með stafrænum hætti

Námsmat

Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metinn jafn óðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.]