Nemendur kynnast grundvallarhugtökum í Rafmagns- og Ljósbylgjufræði og geti beitt þeim við úrlausn verkefna sem lögð eru fyrir. Nemendur eiga að geta beitt þeim einingum SI einingakerfisins er tengjast námsefninu. Efnisþættir: Rafmagnsfræði, bylgjufræði, ljósbylgjufræði, sveifluhreyfing, vægi og segulfræði.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grundvallarhugtökum í rafmagns- bylgju- og ljósgeislafræði
- hinum ýmsu lögmálum eðlisfræðinnar ss. Lögmál Coulombs, Ohms og Faradays
- hugtökunum rafkraftur, rafsvið og hleðsla og geti fundið rafkraft milli tveggja hlaðinna hluta
- reglum Kirchoffs um tengipunkt í rafrás
- jafnstraumsrásum og kunni að beita Ohms-lögmáli til að finna heildarviðnám í rað- og hliðtengdum rásum
- sveiflum og bylgjum og geti reiknað fyrir hana sveiflutíma, tíðni og hornhraða
- notkun stafrænna miðla við lausn og framsetningu verkefna.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna með grundvallarhugtök eðlisfræðinnar sem tengjast viðkomandi efni
- vinna með hugtökin rafkraftur, rafsvið og hleðsla
- að reikna út strauma, spennu og viðnám í mismunandi rafrásum
- leysa ýmis verkefni sem tengjast bylgjum
- leysa dæmi sem þar sem sveiflutími, og hornhraði koma fyrir.
- nýta stafræna miðla við úrlausn verkefna.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita grundvallarhugtökum eðlisfræðinnar sem tengjast viðkomandi efni.
- nota og skilja lögmál eðlisfræðinnar við lausn ýmissa verkefna.
- beita lögmálum sem tengjast rafkrafti, rafsviði og hleðslu og geta nýtt sér þá kunnáttu við lausn verkefna.
- nota viðeigandi reglur til að reikna út strauma, spennu og viðnám í mismunandi rafrásum.
- leysa ýmis verkefni sem tengjast bylgjum
- miðla hugmyndum og lausnum með stafrænum hætti.
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.