Í þessum áfanga er áfram fjallað um frumatriði almennar efnafræði – (haldið áfram þar sem við hættum í EFNA2AE05). Til umfjöllunar er m.a. jafnvægi í efnahvörfum, sölt, sýrur/basar, rafefnafræði, kjarnaefnafræði.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mólstyrk lausna
- söltum, orku í efnahvörfum og hvarfhraða
- sýrum og bösum; pH-hugtakinu, sýru-basa pörum, búfferlausnum og sjálfsjónun vatns
- grunnatriðum í rafefnafræði
- rafeindahýsingu frumefna
- stærð atóma og jóna
- jónunarorku og rafeindafíkn
- helstu eiginleikum frumefna og flokkun
- efnatengjum
- eiginleikum lofttegunda og gaslögmálinu
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- leysa dæmi úr mismunandi hlutum námsefnisins
- framkvæma einfaldar verklegar æfingar
- gera skýrslur úr verklegum efnafræði æfingum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tengja undirstöðuþekkingu úr fyrri efnafræði áfanga við námsefnið
- notfæra sér lotukerfi og nauðsynlegar hjálpar töflur við lausn margvíslegra verkefna og dæma
- lesa úr efnatáknum, efnajöfnum og orku línuritum
- auka skilning sinn á notagildi efnafræðinnar og tengja hana daglegu lífi
- afla sér upplýsinga og frekari þekkingar varðandi viðfangsefnið
- takast á við frekara nám í efna- og náttúrufræðum
- miðla þekkingu sinni og skoðunum með stafrænum hætti
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.