ENSK1EO04 – Enska, fornám 2

Námsgrein: Enska

Heiti
Enska - fornám 2
Þrep
1
Einingafjöldi
4
Undanfari
Að nemandi hafi lokið einum enskuáfanga á 1. þrepi.

Áfram er unnið að því að auka orðaforða og lesskilning nemenda. Unnið verður með lestur, tjáningu, hlustun og ritun texta til að auka skilning og máltilfinningu, ásamt því að farið verður í grunnþætti enskrar málfræði.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnþáttum enskrar málfræði
  • mæltu máli á enska tungu
  • einföldum textum
  • notkun ensks talmáls

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa einfaldan texta
  • skrifa einfaldan en málfræðilega réttan texta
  • skilja enskt talmál

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tjá sig á einfaldan hátt á ensku í ræðu og riti
  • lesa sér til gagns og gamans
  • skrifa einfaldan texta
  • taka virkan þátt í samtölum á ensku

Námsmat

Leiðsagnarmat, þar sem verkefni, stutt próf og vinna nemenda eru metin jafnt og þétt.