Í áfanganum er lögð áhersla á lestur og undirstöðuatriði enskrar málfræði með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Nemendur þjálfast í að tileinka sér grunnorðaforða vísinda og fræða (academic vocabulary), tjá sig í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Unnið verður með lýðræðis- og mannréttindavitund og áhersla er lögð á sköpun í verkefnavinnu nemenda.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- fjölbreyttum orðaforða til markvissrar notkunar í frekara námi og starfi
- almennum málfræðireglum
- nytsemi orðabóka
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa og greina fjölbreytta texta
- nota rafrænar orðabækur og viðeigandi hjálpargögn
- tjá kunnáttu sína munnlega og skriflega á góðu máli
- nýta stafræna tækni til sköpunar og miðlunar verkefna
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- lesa fjölbreytta texta sér til gagns og gamans
- skilja daglegt mál, fjölmiðlaefni, inntak erinda, fræðigreinar og annað flóknara efni
- nota nýjan orðaforða í ræðu og riti
- verða sjálfbjarga í upplýsingaöflun og úrvinnslu upplýsinga á ensku
- nota stafræna tækni til að miðla upplýsingum og tjá sig á skapandi hátt
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum. Áhersla er lögð á skapandi verkefnavinnu og nýtingu stafrænnar tækni.