Megin áhersla áfangans er á bókmenntir, læsi, hlustun, túlkun texta og skapandi verkefnavinnu. Nemendur lesa tvær bækur sem tengjast mannréttindum og lýðræði. Áhersla verður lögð á að nemendur afli sér upplýsinga um höfunda og þær aðstæður og eða tímabil sem til umfjöllunar eru hverju sinni og fái innsýn í þau áhrif sem umfjöllunarefnið hafði eða hefur á það samfélag sem sögurnar gerast í. Nemendur vinna fjölbreytt og skapandi verkefni sem reyna á lesskilning, ritunarfærni, tjáningu og notkun stafrænnar tækni.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- fjölbreyttum bókmenntatextum
- viðameiri og auknum orðaforða sem nýtist til frekara náms
- helstu bókmenntahugtökum á ensku
- samfélagi og menningu í alþjóðlegu samhengi
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- taka þátt í umræðum um það sem efst er á baugi í erlendum fjölmiðlum og komi skoðunum sínum á framfæri á skýran og greinargóðan hátt
- lesa, skilja og túlka enskar bókmenntir
- afla sér þekkingar á einkennum samfélags á mismunandi tímum
- tjá sig á skýran, gagnrýninn og skapandi hátt um það efni sem til umfjöllunar er hverju sinni
- miðla þekkingu sinni og skoðunum á stafrænan hátt
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- lesa enskar bókmenntir sér til ánægju
- kynna sér þann bakgrunn sem sögurnar spretta upp úr
- tjá álit sitt á mismunandi tegundum bókmennta á ensku
- fylgjast með fréttum og taka þátt í almennri umfjöllun um dægurmál á ensku
- takast á við frekara nám
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar eru fjölbreytt einstaklings- og hópverkefni og próf. Lögð er áhersla á fjölbreytt og skapandi verkefnaskil með notkun stafrænnar tækni. Námsmat er nánar útfært í kennsluáætlun.