ENSK3VE03 – Vísindaenska

Námsgrein: Enska

Heiti
Vísindaenska
Þrep
3
Einingafjöldi
3
Undanfari
Að nemandi hafi lokið einum enskuáfanga á 3. þrepi og 5 ein í líffræði.
Í boði
Vor

Í þessum áfanga eru samþætt náttúruvísindi og enska með áherslu á fræðilegan orðaforða. Nemendur kynnast ýmsum hugtökum og aðferðum náttúruvísinda með lestri, umræðum og verkefnavinnu á ensku. Sérstök áhersla er lögð á að efla færni nemenda í að afla sér upplýsinga úr enskum vísindatextum, vinna með gögn og miðla niðurstöðum á skýru og faglegu máli. Verkefnin eru byggð á IELTS tungumálaprófinu.  

Áfanginn tengist vettvangsnámi í Edinborg í Skotlandi þar sem nemendur heimsækja náttúrutengd söfn og áhugaverða staði. Heimsóknirnar eru nýttar til að tengja saman fræðilega þekkingu og raunverulegt vísindastarf, með áherslu á náttúrufræði, rannsóknir, sjálfbærni og hlutverk vísinda í samfélaginu. Nemendur vinna einstaklings- og hópverkefni sem byggja á athugunum, heimildavinnu og kynningum á ensku. Lokaafurðin er ferilbók þar sem nemendur safna sínum verkefnum og nota hana sem  dagbók í ferðinni. 

Þekkingarviðmið 

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: 

  • helstu hugtökum og viðfangsefnum náttúruvísinda sem tengjast líffræði, umhverfisfræði og jarðvísindum
  • mikilvægi vísinda í þróun samfélags, tækni og sjálfbærrar framtíðar
  • uppbyggingu vísindagreina og fræðilegra heimilda á ensku
  • sérhæfðum orðaforða sem notaður er í náttúruvísindum og vísindalegri umfjöllun
  • vísindastarfi, rannsóknarumhverfi og háskólanámi á alþjóðlegum vettvangi
  •  helstu náttúrufræðilegu viðfangsefnum sem koma fram í heimsóknum d. á söfn

Leikniviðmið 

Nemandi skal geta: 

  • lesið og skilið fjölbreytta vísindatexta á ensku og greint meginatriði þeirra
  • aflað upplýsinga úr áreiðanlegum enskum heimildum og nýtt þær í verkefnavinnu
  • beitt viðeigandi náttúruvísindalegum og fræðilegum orðaforða í ræðu og riti
  • tekið þátt í umræðum á ensku um náttúruvísindaleg málefni
  • unnið úr upplýsingum sem safnað er í vettvangsferðum og tengt þær við fræðilegt efni
  •  skipulagt, unnið og kynnt verkefni á ensku með notkun fjölbreyttra miðlunarleiða

Hæfniviðmið 

Nemandi skal geta: 

  • metið og greint náttúruvísindalegar upplýsingar á gagnrýninn hátt
  • tengt þekkingu úr náttúruvísindum við raunveruleg viðfangsefni og áskoranir samfélagsins
  • sýnt sjálfstæði og ábyrgð við öflun, úrvinnslu og miðlun upplýsinga
  • unnið með öðrum að lausn verkefna og tekið virkan þátt í faglegum samskiptum á ensku
  • miðlað niðurstöðum rannsókna, athugana og heimildavinnu á skýran og faglegan hátt
  • ígrundað eigið nám og gert sér grein fyrir möguleikum til áframhaldandi náms og starfs á sviði náttúruvísinda.

Námsmat 

Námsmat byggist á virkri þátttöku, verkefnavinnu fyrir og eftir vettvangsferð, rannsóknar- og heimildaverkefnum, kynningum á ensku og dagbókarskrifum/ferilbók.