Í áfanganum er heilbrigðishugtakið skilgreint. Lögð er áhersla á hlutverk og þróun heilbrigðisfræði og áhrif hennar á nútíma heilbrigðismál. Fjallað er um helstu heilbrigðisvandamál í nútíma samfélagi og forvarnir gegn þeim. Áhersla er lögð á forvarnarstarf gegn sjúkdómum og slysum, áhættuþætti sem þeir tengjast og hvernig einstaklingar geta haft áhrif á eigið heilbrigði. Einnig er tekið fyrir forvarnarstarf sem snýr meðal annars að áfengis- og vímuefnavörnum, smitsjúkdómavörnum o.fl. Samfélag og umhverfi nemenda er skoðað. Ígrundað hvaða þættir stuðla að auknu heilbrigði og hvað hægt er að gera til að efla forvarnir í eigin umhverfi.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- heilbrigðishugtakinu
- þróun heilbrigðisfræði og áhrifum á heilbrigðismál
- helstu heilbrigðisvandamálum í nútíma samfélagi og forvörnum gegn þeim
- aðferðum og aðgerðum sem stuðla að heilsueflingu og forvörnum sjúkdóma
- ábyrgð einstaklingsins á eigin heilsu
- helstu umhverfisþáttum sem ógnað geta heilbrigði einstaklingsins
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- afla á fjölbreyttan hátt þekkingar um aðgerðir og aðferðir sem stuðla að slysavörnum, heilsueflingu og forvörnum sjúkdóma
- sýna í verki að hann tekur ábyrgð á eigin heilsu
- útskýra og kynna forvarnir fyrir unglingum
- gera grein fyrir umhverfisþáttum sem geta ógnað heilbrigði manna
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- útskýra heilbrigðishugtakið út frá mismunandi menningarheimum
- greina samspil lífstíls og heilsu
- greina eigin lífsstíl og áhættuþætti tengda honum
- álykta um áhrif heilbrigðisfræðinnar á þróun heilbrigðismála í nútímanum
- miðla á skapandi hátt upplýsingum um helstu heilbrigðisvandamál og forvarnir þeirra
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafn óðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.