Byrjunaráfangi í íslensku fyrir nemendur sem hafa annað móðurmál en íslensku. Áfanginn samsvarar A0-A1 í evrópska tungumálarammanum. Ekki er gert ráð fyrir að nemendur kunni einhverja íslensku áður en þeir hefja nám í áfanganum. Áhersla er lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði íslensku og byggi upp orðaforða sem tengist daglegu lífi þeirra og athöfnum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnorðaforða og málnotkun sem tengjast daglegu lífi
- helstu framburðarreglum og ritunarreglum í íslensku
- samskiptavenjur og siði í íslensku samfélagi
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tjá sig í einföldum setningum og þekkja algeng orð sem tengjast daglegum athöfnum, fjölskyldu og nánasta umhverfi
- skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
- lesa einfalda texta um málefni sem tengjast daglegu lífi
- fylgja einföldum fyrirmælum og fara eftir eðlilegum samskiptavenjum
- taka þátt í einföldum samræðum
- geta skrifað stutta, einfalda texta, s.s. fylla út eyðublöð og skrifa skilaboð
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá sig á einfaldri íslensku um daglegt líf, munnlega og skriflega
- fara eftir einföldum fyrirmælum, munnlegum og skriflegum
- þekkja venjulegar íslenskar samskiptavenjur og geta farið eftir þeim
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.