ÍSAN1BB05 – Íslenska sem annað mál 2

Námsgrein: Íslenska sem annað mál

Heiti
Íslenska sem annað mál 2
Þrep
1
Einingafjöldi
5
Undanfari
Einn áfangi á 1. þrepi
Í boði
Vor

Áfanginn er framhald af fyrsta stigi (ÍSAN1AA05) og hentar þeim sem hafa öðlast grunnfærni í íslensku. Áfanginn samsvarar A1 – A2 í evrópska tungumálarammanum. Í áfanganum er lögð áhersla á íslenskan orðaforða sem tengist nærumhverfi nemenda, framburð, hlustun, lestur og ritun. Unnið er með alla færniþætti jafnt því markmiðið er að nemendur geti skilið og tjáð sig á íslensku um sjálfa sig og nærumhverfi sitt. Málnotkun sem tengist daglegu málið, þ.m.t. sagnbeygingar í nútíð og þátíð.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • orðaforða og málnotkun sem tengist nærumhverfi og daglegum athöfnum
  • lestur stuttra texta um kunnugleg málefni
  • frásögn í nútíð og þátíð

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa einfalda texta og greina innihald
  • segja frá eigin athöfnum í nútíð og þátíð
  • tjá sig í ræðu og riti um athafnir og atriði sem tengjast nærumhverfi þeirra

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tjá sig á einfaldri íslensku um eigin athafnir og nærumhverfi sitt
  • fara eftir munnlegum og skriflegum leiðbeiningum
  • segja frá og skilja þegar aðrir segja frá eigin athöfnum

Námsmat

Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.