Í áfanganum er lögð áhersla á að undirbúa nemendur undir frekara nám í íslensku. Nemendur þjálfast í lestri fjölbreyttra texta og munnlegri og skriflegri umfjöllun um þá. Lesnar eru smásögur, efni þeirra krufið og sett í samtímalegt samhengi. Helstu stafsetningar- og greinamerkjareglur rifjaðar upp og farið yfir grunnhugtök í bókmenntafræði og bragfræði. Nemendur rita fjölbreytta texta og læra að nýta sér ýmis konar hjálpargögn á borð við handbækur, orðabækur og leiðréttingarforrit. Í áfanganum þjálfast nemendur í sjálfstæðum vinnubrögðum ásamt því að þeir fá tækifæri til að vinna með öðrum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi lestrar og mismunandi lestraraðferðum
- mikilvægi þekkingar á formgerð íslensks máls og muni talmáls og ritmáls
- nokkrum tegundum bókmennta og nytjatexta og helstu hugtökum sem nýtast við umfjöllun um bókmenntir
- uppbyggingu og framsetningu texta á mæltu og rituðu máli
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- að skrifa ýmsar tegundir texta í samfelldu máli þar sem framsetningin er skýr og skipulögð
- fylgja reglum um stafsetningu og greinamerkjasetningu og nýta sér handbækur og leiðréttingarforrit til þess
- beita blæbrigðaríku málsniði í tal- og ritmáli
- lesa sér til gagns og gamans texta sem gera nokkrar kröfur til lesenda og gera gein fyrir þeim á skipulegan hátt
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- styrkja eigin málfræni
- tjá sig af nokkru öryggi á góðu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
- túlka og meta atburðarrás og persónur í bókmenntum eða annars konar frásögnum
- auka og bæta orðaforða og málskilning
- miðla þekkingu sinni og hugmyndum með stafrænum hætti
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum. Til grundvallar matinu eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.