ÍSLE1UN04 – Fornámsáfangi í íslensku 1

Námsgrein: Íslenska

Heiti
Íslenska - fornám 1
Þrep
1
Einingafjöldi
1
Undanfari
Enginn
Í boði
Haust

Áfanginn er ætlaður þeim nemendum sem ekki hafa náð góðum tökum á námsefni íslensku í lokaáföngum grunnskóla. Stefnt er að því að efla sjálfstraust nemenda og trú á eigin málfærni í ræðu og riti. Áhersla er lögð á að nemendur bæti lestrartækni, lestarhraða og lesskilning sinn. Ennfremur fá þeir þjálfun í málfræðihugtökum sem nýtast í tal- og ritmáli og grunnhugtökum í ritgerðasmíð. Nemendur auka orðaforða sinn í ræðu og riti.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnhugtökum í ritgerðasmíð.
  • helstu málfræðihugtökum og ritreglum sem nýtast í tal – og ritmáli.
  • orðaforða umfram það sem gerist í talmáli
  • gildi góðrar lestarkunnáttu í lífi og starfi.
  • nokkrum tegundum bókmennta- og nytjatexta, t.d. skáldsögum, smásögum og blaðagreinum
  • helstu bókmenntahugtökum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • þekkja mismunandi blæbrigði og málsnið í tal- og ritmáli
  • draga saman aðalatriði í fyrirlestrum og lesmáli
  • taka saman og flytja stuttar endursagnir, lýsingar og kynningar á afmörkuðu efni
  • skrifa ýmsar tegundir texta þar sem framsetning er skýr og skipulögð
  • leita upplýsinga úr heimildum og nýta þær á viðurkenndan hátt sér til gagns
  • lesa sér til gagns og gamans texta sem gera nokkrar kröfur til lesenda

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • semja stutta texta af ýmsu tagi með mismunandi málsniði
  • beita einföldum blæbrigðum í málnotkun til að forðast einhæfni og endurtekningar
  • skrifa ritgerð um efni að eigin vali
  • túlka og meta atburðarrás og persónur í bókmenntum eða annars konar frásögnum
  • greina helstu bókmenntahugtök í ýmsum tegundum texta
  • miðla þekkingu sinn og hugmyndum með stafrænum hætti

Námsmat

Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.