ÍÞJÁ2ÍÞ02(ÞB) – Íþróttaþjálfun 1

Námsgrein: Íþróttaþjálfun

Heiti
Íþróttaþjálfun barna
Þrep
2
Einingafjöldi
2
Undanfari
Enginn
Í boði
Haust

Áfanginn er verklegur áfangi. Nemendur velja íþróttagrein sem þeir hafa sérstakan áhuga á og starfi sem aðstoðarþjálfari 2x í viku í eina önn. Hlutverk nemenda er að aðstoða þjálfara á æfingum og leysa þau verkefni sem upp koma í þjálfun barna. Hvort sem það snýr að samskiptum, æfinga vali eða úrlausn annara verkefna sem skapast.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þjálfun barna í viðkomandi íþrótt
  • æfingavali í fyrir mismunandi aldur
  • samskiptum við börn og foreldra

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • þjálfa börn í viðkomandi íþrótt með aðstoð þjálfara
  • greint íþróttina í smærri leikeiningar til að einfalda íþróttina
  • samskiptum við börn

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • stjórna æfingu í viðkomandi íþrótt með aðstoð þjálfara
  • leysa úr vandamálum sem koma upp í þjálfun barna
  • Tekið frumkvæði við þær aðstæður sem koma upp á æfinum barna

Námsmat

Leiðsagnarmat- mæting/virkni