Áfanginn er bóklegur og verklegur og fjallað er um starfsemi mannslíkamans með áherslu á bein og vöðva. Sérstök áhersla verður lögð á þau líffæri og líffærakerfi sem tengjast hreyfingum mannslíkamans. Fjallað er um bein, bönd og liðamót, liðfleti og liðpoka. Einnig um hreyfingu í liðamótum og stefnu hreyfinga. Fjallað er um einstaka vöðva, upptök þeirra, festu og starf. Farið verður í blóðrás og öndunarfæri. Fjallað er um hugtök og grundvallaratriði hreyfifræðinnar og komið inn á tækni íþróttagreina. Áfanginn byggir að stórum hluta á starfrænni hreyfifræði, þ.e. hvernig vöðvar, bein og liðamót líkamans koma við sögu í fjölbreyttum hreyfingum. Nemendur gera æfingar með og án áhalda til að auka skilning sinn á því hvernig ákveðnar hreyfingar myndast í íþróttum. Enn fremur er fjallað um rétta líkamsbeitingu, starfsstellingar og hreyfingar við vinnu.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu vöðvum og vöðvahópum líkamans
- hlutverki beinagrindar og hreyfingu helstu liðamóta
- beinum, böndum og liðamótum líkamans
- helstu lögmálum hreyfifræðinnar
- hjarta og æðakerfum líkamans
- upplýsinga leit á veraldarvefnum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- þekkja helstu vöðva líkamans, upptök þeirra og festu
- þekkja helstu bein líkamans, heiti þeirra og staðsetningu
- þekkja liðgerðir og hreyfingar þeirra
- vinna með helstu hreyfifræðilögmálin
- beita réttri lyftitækni
- nota réttar starfsstellingar
- þekkja afkasta aukandi/hamlandi þætti varðandi hjarta og æða kerfi
- finna upplýsingar og lesa úr þeim af veraldarvefnum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta greint hreyfingu helstu vöðva líkamans út frá upptöku og festu
- geta grein frá staðsetningu og heita helstu beina líkamans
- geta notað hreyfifræðilögmál til að skýra út ýmsar hreyfingar
- geta greint vöðvavinnu í ákveðnum æfingum
- geta greint mun á réttri og rangri líkamsbeitinu
- geta grein frá helstu þáttum varðandi hjarta og æðakerfið
- nýta upplýsingatækni til að vinna úr upplýsingum með fagmennsku í fyrirrúmi
Námsmat
Leiðsagnarmat