ÍÞRF2ÞÞ05 – Íþróttafræði

Námsgrein: Íþróttafræði

Heiti
Íþróttafræði - almennur hluti, þjálfun barna
Þrep
2
Einingafjöldi
5
Undanfari
Enginn
Í boði
Haust

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur læri um hlutverk og framkomu þjálfara í íþróttastarfi, sérstaklega við þjálfun barna á aldrinum þriggja til tólf ára. Íþróttaskólar og hreyfistundir með ungum börnum verða tekinn sérstaklega fyrir. Töluverð áhersla er lögð á hreyfiþroska og sálrænan þroska barna. Lögð er áhersla á skipulag þjálfunar, áætlanagerð og markmiðssetningu. Nemendur fá undirstöðuþekkingu í kennslu- og aðferðafræði íþrótta og þjálfun. Farið verður yfir upphitun bæði almenna og sérhæfða Einnig er lögð áhersla á að nemendur læri um uppbyggingu frjálsra félagasamtaka, sérstaklega íþróttafélaga. Nemendur læra um mikilvægi stefnumótunar og skrásetningar markmiða í félagsstarfi, um uppbyggingu félaga og kynnist skipulagi og helstu skipuritum sem starfað er eftir. Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hlutverki þjálfara í íþróttum
  • að skipuleggja þjálfun og markmið hennar
  • helstu þroskaþáttum barna
  • tilgang upphitunar
  • uppbyggingu frjálsra félagasamtaka
  • starfsemi íþróttafélaga, sérgreina- og fjölgreinafélaga
  • mikilvægi samvinnu og hópstarfs í frjálsum félagasamtök
  • gera sér grein fyrir hlutverki sínu sem fyrirmynd

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skipuleggja einstakar æfingastundir ýmsa aldurshópa
  • greina á milli þjálfunar barna og fullorðinna
  • nýta sér upplýsingatækni við skipulag þjálfunar
  • framkvæma hreyfistundir fyrir börn á mismunandi aldursstigum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta stjórnað æfinga tíma barna með þroska þeirra í huga
  • geta stjórnað upphitun fyrir alla aldurshópa
  • geta útbúið tímaseðla með ákveðin markmið í huga
  • geti skipulagt þjálfun til skemmri og lengri tíma með mismunadi markmið í huga
  • afla sér upplýsinga á ýmsum miðlum til að vinna með í uppsetningu æfingatíma

Námsmat

Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metinn jafn óðum allan námstímann. Til grundvallar eru fjölbreytt verkefni og eða próf úr ólíkum efnisþáttum.