Farið verður ýtarlega í þjáflun styrk og snerpu. Nemendur fara í grunnatriði sem varða þjálffræði í styrktar- og snerpuþjálfun ýmisa hópa íþróttafólks. Læra að gera styrktar- og snerpu áætlanir. Læra að framkvæma ýmsar gerðir af styrktaræfingum. Farið verður yfir mikilvægi góðrar liðleikaþjálfunar, leiðir til að bæta liðleika og hvernig er hægt að framkvæma liðleika æfingar á einstaklingum. Farið verður ýtarlega í íþróttameiðsl og hvernig er hægt að fyrir byggja þau með æfingum og réttri þjálfun. Farið verður yfir grunnatriði í íþóttasálfræði og hvernig íþróttamenn byggja sig upp og þjálfa hugann til að vera tilbúnir þegar það kemur að stóru stundinni. Unnið verður stórt lokaverkefni í áfanganum. Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur. Áfanginn byggist upp á fyrirlestrum og verkefnavinnu nemenda sem er bæði fræðileg og yfirfærslu yfir í verklegar æfingar og áætlanir.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Styrktar og snerpuþjálfun
- Liðleikaþjálfun
- Íþóttameiðslum
- Íþróttasálfræði
- Þjálfun hugans
- Mikilvægi vefmiðla varðandi upplýsinga öflun
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Beita mismunandi aðferðum til styrktar og snerpuþjálfun fyrir ólíka íþróttagreinar
- Beita mismunadi aðferðum til liðleikaþjálfun og greina þörf á liðleikaþjálfun
- Þekkja einkenni helstu íþróttameiðsla og viðbrögð við þeim
- Þekkja helstu kenningar íþróttasálfræðinnar og aðferðir sem íþróttamenn beita til að ná sem bestum árangri
- Leita upplýsinga af vefmiðlum og leggja mat á þær
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Geta búið til styrktar og snerpu áætlun fyrir ýmis stig þjálfunarstig og íþróttagreinar
- Geta búið til liðleikaþjálfun sem byggist á greiningu liðleika
- Geta þekkt helsu íþróttameiðsli og fyrirbyggjandi aðgerðir gegn þeim
- Geta búið til áætlun sem inniheldur ráðlegginar varðandi þjálfun hugans og beitt ýmsum aðferðum til að ná betri árangri með andlegum aðferðum
- Getað dregið saman fróðleik úr ýmsum áttum til að miðla þekkingu sinni
- Vinna úr upplýsingum af vefmiðlum sem tengjast þjálfun og heilbrigði
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metinn jafn óðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.