Í áfanganum læra nemendur undirstöðuatriði í blaki. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur í blaki. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greinunum. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að íþróttirnar sé greindar sundur í stuttar einingar, leikæfingar. Nemendur auki eigin getu í íþróttinni. Áfanginn er bóklegur og verklegur.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- að leiðbeina börnum á mismundandi aldri í blaki
- leikfræði
- skipulagi á þjálfun fyrir börn og unglinga
- leikreglum
- helstu þjálfunaraðferðum
- mikilvægi á fjölbreyttum tækni- og leikæfingum í blaki
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- búa til tímaseðla fyrir mismunandi aldur
- beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni
- stunda blak og miðla því frá sér
- þjálfa í blaki
- sýna og framkvæma ýmsar æfingar sem tengjast íþróttinni
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta leiðbeint ýmsum aldurshópum í blaki með grunnatriði í huga
- geta beitt fjölbreyttum aðferðum við þjálfun
- stunda blakíþróttina með réttu leikreglum
Námsmat
Leiðsagnarmat – mæting/virkni