Í áfanganum læra nemendur að leiðbeina börnum undirstöðuatriði í badminton í samvinnu við kennara. Lögð er áhersla á kennslu grunnfærni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallar færni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur sundur í stuttar einingar, leikæfingar. Farið verður í grunn áherslur í verklegri styrktarþjálfun. Framkvæmd æfinga og mismunandi áherslur í sambandi við mismunandi markmið. Áfanginn er bóklegur og verklegur.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- að leiðbeina börnum á mismundandi aldri í bandminton
- leikreglum
- kennslu í bandminton
- mikilvægi á fjölbreyttum tækni- og leikæfingum í badminton
- mikilvægi styrktarþjálfunar
- mismunandi leiðum til styrktarþjálfunar
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- búa til tímaseðla fyrir mismunandi aldur bandminton iðkanda
- íþróttinni bandminton og miðla því frá sér
- beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni bæði í bandminton og styrktarþjálfun (tækjasal)
- þjálfa í þreksal
- sýna og framkvæma ýmsar styrktarþjálfunar æfingar
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta leiðbeint ýmsum aldurshópum í badminton í samvinnu við kennara
- geta búið til tímaseðla, vikuáætlun og mánaðaráætlun með ákveðinn aldur í huga
- geta beitt fjölbreyttum aðferðum við bandmintonþjálfun
- geta framkvæmt algengustu lyftingaæfingar rétt
- geta leiðbeint fólki í þreksal með fjölbreytt æfinga val og rétta tækni í samvinnu við kennara
Námsmat
Leiðsagnarmat – mæting/virkni