ÍÞRG1KÖ02 – Íþróttagrein

Námsgrein: Íþróttagrein

Heiti
Íþróttagrein - körfuknattleikur
Þrep
1
Einingafjöldi
2
Undanfari
Enginn
Í boði
Haust

Í áfanganum læra nemendur undirstöðuatriði í körfuknattleik. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallar færni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur sundur í stuttar einingar, leikæfingar. Nemendur þjálfist í kennslu körfuknattleiks. Áfanginn er bóklegur og verklegur.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • að leiðbeina börnum á mismundandi aldri í körfuknattleik
  • leikfræði íþróttarinnar
  • skipulagi á þjálfun fyrir börn og unglinga
  • leikreglum
  • helstu þjálfunaraðferðum
  • mikilvægi á fjölbreyttum tækni- og leikæfingum í körfuknattleik

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Búa til tímaseðla fyrir mismunandi aldur körfuknattleiks iðkanda
  • beita flautu og dæma körfuknattleik
  • beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta leiðbeint ýmsum aldurshópum í körfuknattleik
  • geta búið til tímaseðla, vikuáætlun og mánaðaráætlun með ákveðinn aldur í huga
  • geta dæmt körfuknattleik

Námsmat

Leiðsagnarmat- mæting/virkni