Í áfanganum er lögð áhersla markmiðsetningu. Bæði verður unnið með skammtíma-og langtímamarkmið. Nemendur fá að gera eigin þjálfunaráætlun til lengri og skemmri tíma sem byggist á þekkingu um þol, styrk og liðleika úr fyrri áföngum. Lögð er áhersla á að nemendur fái tækifæri til að stunda fjölbreytta þjálfun. Farið verður yfir lífsstílsbreytingar.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- æfingum og leikjum sem viðhalda og bæta tækni íþróttagreina.
- alhliða líkams- og heilsurækt.
- styrkjandi og mótandi æfingum fyrir helstu vöðva og liðamót líkamans.
- geri sér grein fyrir mikilvægi skipulagi þjálfunar.
- skipulagningu eigin þjálfunar til lengri og skemmri tíma
- forsendum og áhrifum þjálfunar á eiginn líkama og heilsu.
- markmiðasetningum til lengri og skemmri tíma
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nýta sér ýmsar leiðir til að stunda styrktarþjálfun
- nýta sér ýmsar leiðir til að stunda þolþjálfun
- skilja hvaða þættir í eiginn lífstíl hafa áhrif á heilsu.
- markmiðasetningu sem tekur til hreyfingar og mataræðis
- sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum sem varða þjálfun á eiginn líkama
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum sem varða þjálfun á eiginn líkama
- útbúa sérsniðna styrktar áætlun sem hentar honum sjálfum til lengri tíma
- útbúa sérsniðna þolþjálfunar áætlun sem hentar honum sjálfum til lengri tíma
- geta breytt eiginn lífstíl ef þörf er á
- geta valið og hafnað ákveðnum matartegundum vegna hollustugildis með tilliti til markmiða sinna
Námsmat
Leiðsagnarmat