Fjallað verður um kynlíf, kynhneigðir og kynheilbrigði með áherslu á mikilvægi gagnkvæmrar virðingar í samskiptum fólks. Jafnframt verður fjallað um kynferðislegt, andlegt og fjárhagslegt ofbeldi. Áhersla verður lögð á að efla sjálfsvirðingu nemenda og mikilvægi ábyrgrar ákvarðanatöku.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Virðingu í samskiptum
- Eigin mörk og virða mörk annarra
- Hugtakinu kynhneigð
- Mikilvægi kynheilbrigðis
- Ábyrgri kynhegðun
- Algengum kynsjúkdómum og getnaðarvörnum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Eiga viðeigandi samskipti sem einkennast af virðingu
- Leita sér upplýsinga varðandi viðfangsefnið s.s. kynfræðslu, kynheilbrigði, kynvitund, kynhegðun
- Íhuga og kanna eigið viðhorf til kynlífs
- Tjá skoðanir sínar um viðfangsefnið
- Meta hvenær er um kynferðislega, andlega og fjárhagslega misnotkun er að ræða
- Koma auga á eigin fordóma og annarra
- Þekkja eigin líkama og mörk
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Taka ábyrgð á eigin samskiptum í raun- og netheimum
- Taka ábyrgð á eigin hegðun í raun- og netheimum
- Geta valið og hafnað í athöfunum og samskiptum
- Taka ígrundaðar ákvarðanir varðandi kynheilbrigði sitt
- Spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
- Auka sjálfstæði sitt og trú á sjálfum sér
Námsmat
Leiðsagnarmat; verkefnaskil og virkni. Sjálfsmat og jafningjamat.