LÍFS1LC01 – Lífsnám 3

Námsgrein: Lífsleikni

Heiti
Lífsnám með áherslu á sjálfbærni og sjálfbæra þróun í tengslum við Heimsmarkmið SÞ. Skammstöfun
Þrep
1
Einingafjöldi
1
Undanfari
Enginn

Í þessum áfanga er gerð grein fyrir helstu viðfangsefnum sjálfbærni og sjálfbærri þróun í tengslum við Heimsmarkmið SÞ. Áhersla er lögð á markmið um hreint vatn og hreinlætisaðstöðu, sjálfbæra orku, sjálfbærar borgir og samfélög, ábyrga neyslu og framleiðslu ásamt aðgerðum í loftslagsmálum. Fjallað er um sjálfbærni í alþjóðlegu samhengi og út frá nærumhverfi. Fjallað um sjálfbæra neyslu einstaklinga og sjálfbæra framleiðslu fyrirtækja.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Heimsmarkmiðum Sameinuðu Þjóðanna sem fjalla um sjálfbæra þróun og sjálfbærni
  • Hugtökunum sjálfbærrar þróunar og sjálfbærni og hvað þau merkja í alþjóðlegu samhengi og fyrir nærsamfélag
  • Hvað sjálfbær nýting auðlinda merkir
  • Skilja samhengi nýtingar auðlinda og áhrifa hennar á lífríki og landslag og þáttar mannsins í þróun umhverfisins
  • Aðgerðum fyrirtækja og stofnanna til að efla sjálfbærni

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Fjalla um álitamál sem varða sjálfbærni í víðum skilningi
  • Tengja saman siðferðisvitund og vitund um orsakir og afleiðingar af gerðum mannsins sem tengjast sjálfbærni
  • Tengja saman ólíkar fræðigreinar hvað varðar sjálfbærni samfélaga
  • Öflun frekari upplýsinga á sjálfstæðan hátt um sjálfbærni og sjálfbæra þróun

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Tengja undirstöðuþekkingu á sjálfbærni við daglegt líf
  • Taka ábyrgð á eigin lífi með hliðsjón af sjálfbærni samfélaga
  • Geta greint nauðsynlegar upplýsingar um sjálfbærni og sjálfbæra þróun og geta hagnýtt sér og miðlað þeim upplýsingum á skapandi hátt

Námsmat

Leiðsagnarmat; verkefnaskil og virkni. Sjálfsmat og jafningjamat.