Í áfanganum er stefnt að því að gera nemendur meðvitaða um fjármál, peninga og hlutverk þeirra í daglegu lífi. Farið er í laun og frádrátt og hvert hann fer, eigin fjármál og rekstur bíls, sparnað, lántöku og fleira sem snertir fjárhagslegar skuldbindingar sem nemendur þurfa að takast á hendur. Einnig verður farið í mikilvægi þess í að halda utan um tekjur og gjöld. Markmið áfangans er að leggja grunn að því að gera nemendur sjálfbjarga í raunverulegum aðstæðum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Einföldum fjármálum daglegs lífs
- Lestri launaseðla, tilgangi skatta og annars frádráttar
- Þáttum sem tengjast verslun á netinu innanlands og erlendis
- Mismunandi leiðum í sparnaði og lántöku
- Mikilvægi þess að vera vakandi yfir réttindum sínum og skyldum á vinnumarkaði
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Reikna gróflega útborgun launa eftir skatt
- Gera sér grein fyrir daglegum kostnaði fyrir einstakling
- Leita sér upplýsinga sem aðstoðar hann við eigin fjármálastjórnun og réttindamál
- Leita sér upplýsinga varðandi leiðir í sparnaði og lántöku
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Nýta sér upplýsingar til að geta haldið utan um eigin tekjur og útgjöld
- Geta staðið vörð um réttindi sín og tekið ábyrgð á skyldum sínum á vinnumarkaði
- Vinna sjálfstætt og með öðrum að greiningu og framsetningu upplýsinga með skýrum hætti
Námsmat
Leiðsagnarmat; verkefnaskil og virkni. Sjálfsmat og jafningjamat.