LÍOL2MB05 – Líffæra og lífeðlisfræði

Námsgrein: Líffæra og lífeðlisfræði

Heiti
Lífeðlisfræði mannsins
Þrep
2
Einingafjöldi
5
Undanfari
Að nemandi hafi lokið einum líffræðiáfanga á 2. þrepi.
Í boði
Haust

Í áfanganum eru tekin fyrir helstu líffærakerfi mannsins og grunnlífeðlisfræði þeirra s.s. hringrásar-, meltinga-, loftskipta- , þveitis-, tauga-, stoð-, vöðva- og innkirtlakerfi. Fjallað um heilbrigða starfsemi en einnig algengustu frávik (orsakir þeirra og afleiðingar).

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • byggingu húðar og þátt í hitatemprun
  • blóði, samsetningu þess og hlutverki
  • byggingu og starfsemi hringrásarkerfi mannsins
  • byggingu og starfsemi meltingakerfis mannsins
  • byggingu og starfsemi loftskiptakerfis mannsins
  • byggingu og meginhlutverk taugakerfisins
  • hlutverk beina og vöðva
  • taugaboði og vöðvasamdrætti
  • helstu innkirtlum og hormónum þeirra
  • þveiti og vökvastjórn mannslíkamans
  • helstu orsakir og afleiðingar á frávikum á heilbrigðri starfsemi líffærakeranna

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita hugtökum námsefnisins
  • geta fjallað um heilbrigða starfsemi líffærakerfa
  • tengja í heild starfsemi líffærakerfa
  • geta greint frá helstu frávikum frá eðlilegri starfsemi líffærakerfa
  • skoða frumur og vefi með ljóssmásjá
  • beita réttum vinnureglum við krufningar og fleiri verklegar æfingar
  • vinna skýrslur úr verklegu efni
  • nýta upplýsinga- og stafrænatækni við öflun upplýsinga og heimilda við verkefnavinnu
  • vinna sjálfstæð kynningarverkefni úr námefninu

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • þekkja eigin líkama og gera sér grein fyrir mikilvægi góðrar heilsu
  • taka ábyrgð á eigin lífsháttum og heilsu
  • beita vísindalegum vinnubrögðum innan sem utan kennslustofunnar
  • takast á við frekara nám í náttúru- og/eða heilbrigðisgreinum
  • miðla þekkingu sinni og skoðunum með stafrænum hætti …sem er metið með… ýmsum verkefnum

Námsmat

Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.