Lokaverkefni eru einstaklingsverkefni sem ætlað er að þjálfa nemendur í að beita viðurkenndum aðferðum við heimildavinnu og rannsókn eða lausn viðfangsefna og undirbúa þá undir verkefnavinnu í háskólanámi. Ríkar kröfur eru gerðar um sjálfstæði og vönduð vinnubrögð. Nemendur kynna viðfangsefni sín á málstofu.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- tilteknu viðfangsefni sem hann hefur valið sér
- byggingu heimilda- og rannsóknarritgerða
- nauðsyn þess að vanda meðferð heimilda
- reglum um höfundarrétt og hugmyndum um ritstuld
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- afla fjölbreyttra heimilda, t.d. skráðra heimilda úr bókum, tímaritum og af netinu eða frumheimilda, ef svo ber undir
- vinna með og leggja mat á upplýsingar úr heimildum á sjálfstæðan og gagnrýninn hátt
- fylgja viðurkenndum reglum við gerð og frágang ritgerðar
- skrifa skýran og greinargóðan texta
- tjá sig, í ræðu og riti, á gagnrýninn og skapandi hátt um sérhæft efni
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera raunhæfa verkáætlun og framfylgja henni
- setja fram rökstudda rannsóknarspurningu
- miðla þekkingu sinni með stafrænum hætti
- skrifa lokaritgerð/verkefni samkvæmt viðurkenndum aðferðum
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda í áfanganum er metin með reglubundnum hætti. Til grundvallar matinu eru einkum verkáætlun nemanda, sjálfstæði í vinnubrögðum, efnistök, mál og stíll, meðferð heimilda og frágangur verkefnis.