Í áfanganum er fjallað um valda þætti í sögu annarra heimsálfa en Evrópu þ.e. í Afríku, Ameríku, Asíu og Eyjaálfu. Farið verður yfir fjölbreytt viðfangsefni tengt heimsálfunum. Í áfanganum verður hver og ein heimsálfa skoðuð í fjölbreyttu samhengi. Fjallað er um ólík lönd innan heimsálfanna og farið yfir almenn atriði t.d. mannfjölda, tungumál, staðsetningar, lífríki, helstu borgir, kennileiti og auðlindir í ólíkum löndum heimsálfanna Afríku, Ameríku, Asíu og Eyjaálfu. Einnig verður farið yfir sögulega atburði í völdum löndum innan heimsálfanna. Fjallað verður um ólík trúarbrögð í völdum löndum innan heimsálfanna ásamt stöðu efnahagsmála, lífskjara og mannréttinda. Einnig er fjallað um menningu valdra landa og hvernig menning setur svip sinn á þau lönd sem eru til umfjöllunar.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- almennum atriðum varðandi heimsálfanna Afríku, Ameríku, Asíu og Eyjaálfu
- almennum atriðum t.d. mannfjölda, tungumál, staðsetningar, lífríki, helstu borgir, kennileiti og auðlindir í ólíkum löndum heimsálfanna Afríku, Ameríku, Asíu og Eyjaálfu
- sögulega atburði í völdum löndum innan heimsálfanna Afríku, Ameríku, Asíu og Eyjaálfu
- um ólík trúarbrögð í völdum löndum innan heimsálfanna ásamt stöðu efnahagsmála, lífskjara og mannréttinda
- menningu valdra landa og hvernig menning setur svip sinn á þau lönd sem eru til umfjöllunar.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- geta aflað sér traustra og áreiðanlegra heimilda um viðfangsefni sögu fjarlægðra slóða
- greint upplýsingar og sett í fræðilegt og sögulegt samhengi
- tjá þekkingu sína á munnlegan og skriflegan hátt
- vinna á sjálfstæðan og ábyrgan hátt undir leiðsögn
- nýta margvíslega tækni í þekkingarleit og á ábyrgan og gagnrýnin hátt
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka þátt í umræðum þar sem hann getur tjáð skoðanir sínar, rökstutt þær og hlustað á skoðun annarra
- geta beitt öguðum vinnubrögð og borið ábyrgð á eigin námi
- vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra
- miðla sögulegri þekkingu sinni á fjölbreyttan hátt
- til að meta eigið vinnuframlag
- hugsa og starfa á gagnrýnin og skapandi hátt
- miðlað þekkingu sinni og hugmyndum með stafrænum hætti
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.