Afbrotasálfræði (eða réttarsálfræði) fjallar um hagnýtingu fræðigreinarinnar sálfræði við rannsóknir á afbrotum og sakamálum. Einkum er sjónum beint að hegðun, hugsun, tilfinningum og sjálfsmynd fólks sem fremur afbrot, t.d. alræmdra raðmorðingja. Í áfanganum verður sérstaklega fjallað um siðblindu (síkópatíu) en líka aðrar persónuleikaraskanir í tengslum við afbrotahegðun. Greindar verða þekktar kvikmyndir og sjónvarpsefni sem byggist á raunverulegum og skálduðum afbrotamálum m.t.t. grundvallaratriða fræðigreinarinnar sálfræði.
Þekkingarviðmið – nemendur öðlast þekkingu og skilning á helstu:
- grunnhugtökum sálfræðinnar og hagnýtingu þeirra í undirgreininni afbrotasálfræði
- rannsóknum og greiningum á persónuleikaröskunum á borð við siðblindu
- kvikmyndum og sjónvarpsþáttum sem fjalla um tengsl afbrota og sálfræði
Leikniviðmið – nemendur öðlast leikni í:
- að vinna með helstu grunnhugtök afbrotasálfræðinnar
- þekkja helstu mál fræðigreinarinnar;
- fjalla á gagnrýninn máta um sálfræðilega þætti í kvikmyndum og sjónvarpsefni.
Hæfniviðmið – nemendur hagnýta þá almennu þekkingu og leikni sem þeir afla sér:
- til að öðlast frekari skilning á og innsýn í fræðigreinina sálfræði og sérstaklega undirgreinina afbrotasálfræði (forensic/criminal psychology)
- horfa á afþreyingarefni frá fræðilegu sjónarhorni.
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstimann. Til grundvallar matinu eru ýmis tímaverkefni og/eða próf.