Nemendur fái innsýn í fræðigreinina, helstu viðfangsefni hennar, rannsóknaraðferðir og sögu hennar. Fjallað verður um helstu sjónarmið í nútímasálfræði, ennfremur um minni og námstækni, viðbragðsskilyrðingu og tengsl hennar við daglegt líf, til dæmis ótta, lært bjargarleysi og áhrif auglýsinga; einnig um virka skilyrðingu í sambandi við t.d. uppeldi og hegðunarvandamál; og sjálfsmynd og samskipti. Nemendur beiti vísindalegri aðferð og hugsun við gerð lítilla rannsókna.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu sviðum sálfræðinnar og sögu hennar
- kenningum sem markað hafa þáttaskil í sálfræði
- hugmyndum þekktra sálfræðinga
- rannsóknar- og starfsaðferðum sálfræðinga
- rannsóknum þekktra sálfræðinga á borð við Pavlov og Skinner
- nýjum straumum í sálfræði
- gildi sálfræðinnar í daglegu lífi
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina þá þætti sem sjálfsmynd er samsett úr
- beita hugökum sálfræðinnar á skýran og skilmerkilegan hátt
- greina grein fyrir niðurstöðum sálfræðirannsókna
- setja fram spurningar og taka þátt í umræðu um sálfræðilegt efni
- tjá kunnáttu sína á munnlegan og skriflegan hátt
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja sálfræðilega umfjöllun …sem er metið með… prófum, verkefnum og umræðum
- gera greinarmun á geðveiki og siðblindu …sem er metið með… prófi og verkefni
- afla gagna um sálfræðileg efni, greina þau og nýta til frekari vinnslu …sem er metið með… verkefnum og rannsókn
- gera litla rannsókn í samstarfi við aðra …sem er metið með… rannsóknaráætlun og rannsókn sem unnin er í hóp
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstimann. Til grundvallar matinu eru ýmis tímaverkefni og/eða próf auk lítillar rannsóknar.