Þáttun, hornaföll, annars stigs jöfnur, rótarjöfnur, algildisjöfnur, fleygbogar og föll.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Frumþáttun.
- Þáttun og liðun algebrustæða .
- Reikningi með algebrubrot.
- Veldareglum og sambandi milli velda og róta
- Annars stigs og hærra stigs jöfnum
- Algildisjöfnum, rótarjöfnum og ójöfnum
- Margliðum og margliðudeilingu.
- Fallhugtakinu, skilgreiningarmengi og myndmengi.
- Margliðuföllum og ræðum föllum.
- Grafi annars stigs margliðu.
- Hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi.
- Notkun stafrænna miðla við lausn og framsetningu verkefna.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Beita táknmáli s.s: Reglum um stærðfræðilega framsetningu viðkomandi námsefnis og geti túlkað það sem felst í táknmáli á mæltu máli.
- Frumþátta
- Vinna með algebrubrot.
- Nota veldareglur
- Leysa margliðujöfnur og ójöfnur, algildisjöfnur og rótarjöfnur.
- Kanna fleygboga
- Túlka myndrænt jöfnur og ójöfnur
- Nýta grafískan vasareikni til lausnar verkefna
- Beita hornafræði í rétthyrndum þríhyrningi.
- Nýta stafræna miðla við úrlausn verkefna.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Skrá lausnir sínar skipulega og útskýra hugmyndir sínar og verk í mæltu og máli.
- Greina og hagnýta upplýsingar á sviði stærðfræði á þrepinu
- Skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau.
- Skilja hverskonar spurningar leiða til stærðfræðilegra viðfangsefna, spyrja slíkra spurninga og gera sér grein fyrir hver hugsanleg niðurstaða geti orðið.
- Átta sig á og gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna.
- Beita gagnrýnni og skapandi hugsum og innsæi við lausn verkefna og þrauta.
- Klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa þau og túlka lausnina.
- Skilja röksemdir, þar með taldar sannanir í námsefni og beita einföldum röksemdafærslum.
- Leysa verkefni í öðrum námsgreinum : s.s eðlisfræði og hagfræði.
- Miðla hugmyndum og lausnum með stafrænum hætti.
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.