Í þessum áfanga er áhersla lögð á að nemendur öðlist tæknifærni og þjálfist í grunnþáttum stafrænnar hönnunar, miðlunar og forritunar. Nemendur læra að nýta sér hugbúnað, tæki og aðferðir við hönnun og framleiðslu fjölbreyttra verkefna. Nemendur fá tækifæri til að læra á mynd- og hljóðver til að miðla hugmyndum og verkefnum. Nemendur fást við grunnþætti forritunar í gegnum handleidd verkefni og með því að hanna og forrita eigin lausnir.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Hugbúnaði, tækjum og aðferðum sem nýtast til sköpunar og miðlunar.
- Grunnþáttum forritunar í hagnýtum verkefnum.
- Hvernig hægt er að vinna í mynd- og hljóðveri.
- Mikilvægi vandaðra vinnubragða og skipulagi í flóknum verkefnum.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Nota hugbúnað, tæki og aðferðir í sköpun sinni og miðlun.
- Beita skapandi og greinandi hugsun við lausn verkefna.
- Sýna seiglu og bera ábyrgð á eigin verkefnavinnu.
- Nýta sér samspil tækni, hönnunarhugsunar og stafrænnar miðlunar.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Skapa eigin útfærslur að lausnum verkefna.
- Vinna að hagnýtum og skapandi verkefnum.
- Afla upplýsinga, túlka þær og miðla.
- Útskýra ferli og vinnulag í eigin verkefnum.
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafn óðum allan námstímann. Til grundvallar matinu eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.