Í þessum áfanga er áhersla lögð á að veita nemendum innsýn í vísindalega og skapandi hugsun og aðferðir. Nemendur þjálfa vísindalega hugsun og rannsóknir innan náttúruvísinda og miðla þekkingu sinni með því að nota aðferðir skapandi greina. Nemendur fá tækifæri til að vinna út frá eigin hugmyndum, tengjast samfélagi í verkefnavinnu sinni og fá innsýn í störf fólks innan vísinda og skapandi greina.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Vísindalegri hugsun og vinnulagi.
- Hugbúnaði, tækjum og aðferðum skapandi miðlunar.
- Störfum innan vísinda og skapandi greina.
- Heimildaöflun í tengslum við rannsóknir og skapandi miðlun.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Nota aðferðir og tækni við rannsóknir og skapandi úrvinnslu.
- Beita vísindalegri og skapandi hugsun í verkefnavinnu.
- Vinna sjálfstætt og með öðrum að samþættum verkefnum.
- Sýna seiglu og bera ábyrgð á eigin verkefnavinnu.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Vinna að þverfaglegu verkefni þar sem hann nýtir þær aðferðir og verkfæri sem liggja til grundvallar í áfanganum.
- Nýta eigið áhugasvið til að móta verkefni sem samþættir vísindi og skapandi miðlun.
- Afla upplýsinga og þekkingar, túlka þær og miðla.
- Útskýra ferli og vinnulag í eigin verkefnum.
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafn óðum allan námstímann. Til grundvallar matinu eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.