Nemendur og starfsfólk Menntaskóla Borgarfjarðar fá aðgang að internetinu og þráðlaust tölvunet er til staðar í skólanum.
Til viðbótar setur MB eftirfarandi reglur um notkun netsins og þær gilda hvort sem notaðar eru eigin fartölvur eða tölvur skólans, snjallsímar eða önnur snjalltæki.
- Tölvu- og tæknibúnað ber að nota á heiðarlegan, siðferðilega réttan og löglegan hátt.
- Notkun farsíma og annarra snjalltækja í kennslustundum er óheimil nema því aðeins að hún sé í þágu kennslunnar og er háð samþykki kennara hverju sinni.
- Niðurhal á efni ótengdu skólastarfi er óheimilt.
- Óheimilt er að villa á sér heimildir í samskiptum á netinu, svo sem með því að koma fram undir fölsku nafni í tölvupósti eða á samfélagsmiðlum.
- Óheimilt er að taka og/eða birta myndir eða upptökur sem teknar eru í skólanum án leyfis nemenda og starfsfólks. Hópmyndir af viðburðum á vegum skólans eru þó leyfðar, en einstaklingar geta alltaf beðið stjórnendur um að myndir af þeim séu ekki birtar.
- Vanþekking á reglum leysir notanda ekki undan ábyrgð.
- Verði vart við brot á reglum skal máli viðkomandi vísað til skólastjórnenda. Brot sem varða landslög verða kærð til lögreglu.