Reglur um skólasókn
Nemendur skulu sækja stundvíslega allar kennslustundir. Mæti nemandi of seint í kennslustund fær hann hálft fjarvistarstig, mæti nemandi meira en 10 mínútum of seint fær hann eitt fjarvistarstig.
Niðurfelling fjarvistarstiga
Heimilt er að fella niður fjarvistir vegna veikinda sem hafa verið tilkynnt.
Nemendur þurfa að tilkynna veikindi samdægurs fyrir kl. 10:00 á skrifstofu skólans. Ef nemandi er yngri en 18 ára þarf forráðamaður að tilkynna veikindi. Nemendur þurfa að skila læknisvottorði til skrifstofu skólans vegna allra veikindadaga umfram tvo í mánuði.
Heimilt er að veita leyfi:
- Vegna námsferða á vegum skólans.
- Vegna starfa í stjórn Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar.
- Vegna undirbúnings og þátttöku í keppni á vegum skólans, íþróttafélags eða sérsambands íþróttafélaga. Staðfesting viðkomandi félags eða sérsambands um þátttöku þarf að fylgja umsókn um leyfi.
- Vegna fráfalls náins ættingja eða vinar.
- Vegna ófærðar eða annarra óviðráðanlegra tilvika sem nemandi eða forráðamaður staðfestir.
- Vegna rökstuddrar umsóknar um brýn erindi frá nemanda og forráðamanni ef við á.
Sækja þarf um öll leyfi til skólameistara.
Meðferð og viðurlög
Skólasókn þarf að vera 85% til að nemandi eigi vísa skólavist á næstu önn.
- Þegar nemandi er kominn með 10 fjarvistarstig í áfanga fær hann og forráðamaður, ef við á, skriflega viðvörun og nemandi fer í viðtal hjá umsjónarkennara.
- Þegar nemandi er kominn með 13 fjarvistarstig í áfanga fer hann í viðtal hjá skólameistara eða aðstoðarskólameistara eftir atvikum.
Skólasókn í áfanga þarf að vera 85% til að nemandi hafi staðist viðkomandi áfanga.
- Fái nemandi 16 óútskýrð fjarvistastig úr tilteknum áfanga er hann fallinn í áfanganum.
Athugið að ekki er veitt leyfi í tengslum við atvinnu nemenda, tómstundir og frístunda- eða fjölskylduferðir enda ætti það að rúmast innan þess svigrúms sem skólinn gefur (85% mætingarskylda).
Skólameistara er heimilt að víkja nemanda úr námi að því tilskildu að nemandi hafi fengið viðeigandi aðvaranir. Nemandi hefur rétt til áfrýjunar til skólanefndar.