Forseti Íslands bauð fulltrúum framhaldsskólanna á fund

Halldóra Lóa ÞorvaldsdóttirFréttir

Forseti Íslands Halla Tómasdóttir, bauð fulltrúum stjórnenda í framhaldsskólum á fund föstudaginn 11. september til að hefja verkefnið „Samtal“ sem áformað er að efna ti í október í tengslum við 40 ára afmæli leiðtogafundar í Höfða árið 1986.

Fyrir hádegi hittust skólastjórnendur á Teams fundi þar sem Halldóra Lóa Þorvalsdóttir mætti fyrir hönd skólans en efti hádegi bauð forsetinn fulltrúum nemenda heim að Bessastöðum og mættu tæplega 40 nemendur til leiks. Flestir á mættu staðinn en einnig bauðst nemendum að nýta Teams.  Fyrir hönd Menntaskóla Borgarfjarðar fór formaður nemendafélagsins Kristján Karl Hallgrímsson.

,,Efni beggja funda var skipulag og inntak Samtals sem áformað er að fari fram í framhalsskólum um allt land laugardaginn 10. október. Er gert ráð fyrir því að ungmenni leiði þar samtöl fólks á ólíkum aldri um áskoranir samtíðarinnar og um framtíðina“, segir á vef forseti.is.