Fjölbreytt lokaverkefni útskriftarefna

Halldóra Lóa ÞorvaldsdóttirFréttir

Í síðustu viku var haldin málstofa í áfanganum Lokaverkefni, þar sem útskriftarnemendur kynntu rannsóknarspurningar sínar og fyrstu skref í vinnu við lokaverkefni sín.

Í áfanganum vinna nemendur annað hvort að heimildaritgerð eða rannsókn á afmörkuðu viðfangsefni. Markmið áfangans er að efla akademísk vinnubrögð og veita nemendum reynslu af öflun og meðferð heimilda, mótun rannsóknarspurningar, fræðilegum skrifum, gagnrýninni hugsun og framsetningu efnis í munnlegum kynningum.

Rannsóknarspurningar nemenda eru afar fjölbreyttar í ár og endurspegla bæði ólíkan áhuga þeirra og víðtækt svið viðfangsefna. Á málstofunni fengu nemendur tækifæri til að kynna hugmyndir sínar, ræða rannsóknir sínar við samnemendur og kennara og fá gagnlega endurgjöf áður en lengra er haldið í verkefnavinnunni.

Það verður spennandi að fylgjast með framvindu verkefnanna á næstu vikum og sjá afrakstur vinnunnar í byrjun desember.