West Side er samstarfsverkefni Menntaskóla Borgarfjarðar (MB), Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi (FVA) og Fjölbrautaskóla Snæfellinga (FSN) og hefur staðið um nokkurra ára skeið. Á West Side hittast nemendur skólanna, keppa í ýmsum greinum og dagskránni lýkur með balli. West Side var að þessu sinni haldið á Akranesi þann 12. október síðastliðinn. Rúmlega 40 nemendur frá MB lögðu leið sína á Akranes. Keppt var í blaki, körfubolta og fílabolta í íþróttahúsinu, pítsa snædd þar og loks haldin Gettu betur keppni. Dagskránni lauk svo með dansleik á Gamla Kaupfélaginu, en þeir Króli&Jói P og DJ Snorri Ástráðs héldu uppi stuðinu. Nemendur MB stóðu sig vel í öllum keppnunum og voru skólanum til sóma.