Námsmat í MB er fyrst og fremst leiðsagnarmat en formleg annarpróf í lok anna eru ekki til staðar heldur eru nemendur metnir jafnóðum allan námstímann. Þeir fá endurgjöf tvisvar sinnum á önn á svokölluðum Vörðum. Á vörðum er notast við þriggja stiga skala; mjög gott – í lagi – ófullnægjandi, ásamt skriflegum ábendingum frá kennara. Í matinu er notast við flest þekkt mælitæki í skólastarfi, t.d. ígrundun kennarans, munnleg- og skrifleg próf, sjálfsmat, verkefni af ýmsum toga og virkni nemenda í tímum. Endurgjöf kennara á vörðum endurspeglar því ekki eingöngu einkunnir nemandans í viðkomandi áfanga heldur eru fleiri þættir sem liggja til grundvallar vörðumati kennara.
| Mjög gott | Vinnubrögð mjög góð og öllum verkefnum skilað á vandaðan hátt. Virk þátttaka í kennslustundum þar sem þekking nemendans nýtur sín. Verkefnum skilað á réttum tíma og í samræmi við leiðbeiningar. Markmiðum áfangans er náð. |
| Í lagi | Vinnubrögð góð og verkefnaskil í meðallagi. Þátttaka í kennslustundum og virkni í meðallagi. Ekki öllum verkefnum skilað og/eða í samræmi við leiðbeiningar. Flestum markmiðum áfangans er náð en einhverjum ábótavant. |
| Ófullnægjandi | Vinnubrögð ófullnægjandi og verkefnaskil slök. Óvirkur þátttakandi í kennslustundum og virkni er lítil sem engin. Námsárangur uppfyllir ekki markmið áfangans. |
Skipulag varða
Kennari
Varða 1 – munnleg og skrifleg varða – kennari ræðir einslega við alla sína nemendur – niðustöður birtar í INNU
Varða 2 – kennari gefur endurgjöf í sínum áföngum – niðustöður birtar í INNU
Umsjónarkennari
Varða 1 – fær niðurstöður frá kennara í viðkomandi áfanga – ræðir almennt við nemendur – hefur samband við foreldra/forráðamenn nýnema
Varða 2 – fær niðurstöður frá kennara í viðkomandi áfanga – hittir nemendur og ræðir við hvern og einn, og hefur samband við foreldra/forráðamenn nemenda yngri en 18 ára