Dagur íslenskrar tungu var þriðjudaginn 16. nóvember. Hann var haldinn hátíðlegur í Borgarnesi með dagskrá í Mennta- og menningarhúsi Borgarbyggðar í Borgarnesi. Dagurinn hófst á því að Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og fylgdarlið snæddi hádegisverð í boði Menntaskólans. Formleg dagskrá hófst kl 13:00 í hátíðarsal skólans. Sýnd voru atriði frá nemendum Grunnskólans í Borgarnesi og nemendum í Menntaskóla Borgarfjarðar.
Nemendur úr 3., 6. og 8. bekk Grunnskólans í Borgarnesi sungu og lásu ljóð eftir borgfisk skáld. Kór Menntaskóla Borgarfjarðar kom fram í fyrsta sinn og söng nokkur lög undir stjórn Jónínu Arnardóttur. Tveir nemendur MB, Jóhanna og Magnús Daníel, lásu kafla úr sögu sem nemendur í íslenskuáfanga sömdu undir leiðsögn Ásdísar Haraldsddóttur, kennara. Sýndar voru tvær stuttmyndir um Helga sögu Hundingsbana sem nemendur höfðu búið til. Að lokinni dagskránni í hátíðarsal skólans fór menntamálaráðhera og fyldarlið í kynnisferð um skólann og komu við kennslustundum og ræddu við nemendur.