Algengt er að svokallaðir gestafyrirlesarar heimsæki Menntaskóla Borgarfjarðar og kynni margvísleg málefni. Nýverið bar þó svo við að gestafyrirlesari kom úr röðum nemenda. Torfi Lárus Karlsson, nemandi á öðru ári í MB, sagði samnemendum sínum í líffræðiáfanga frá sjúkdómnum „lymphatic malformations“ og sýndi myndir sem tengjast ævilangri glímu hans við sjúkdóminn. Sjúkdómurinn, sem er afar sjaldgæfur, lýsir sér með ofvexti í sogæðum og veldur bólgum í vefjum sem þenjast út. Torfi Lárus, sem er fæddur árið 1997, hefur gengið í gegnum ótal aðgerðir bæði hér á landi og erlendis og dvalið langdvölum á sjúkrahúsum. Hann lætur það þó ekki aftra sér og heldur ótrauður áfram skólagöngunni.
Torfi Lárus gekk í grunnskólann í Borgarnesi og stundar nú nám á öðru ári í MB. Kennari hans í líffræði er Þóra Árnadóttir og þess má geta að innan skamms heldur hún ásamt Torfa og samnemendum hans í náms- og kynnisferð til Svíþjóðar.