Angela Gonder og Elín Heiða Sigmarsdóttir tóku þátt í hæfileikakeppni starfsbrauta sem fór fram í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ sl. fimmtudagskvöld. Þær fluttu lagið Undo sem Sanna Nielsen söng í Eurovision keppninni sl. ár fyrir Svíþjóð. Starfsbrautir 15 skóla á landsvísu tóku þátt í keppninni. Pollapönkarar ásamt Siggu Eyrúnu sem varð í öðru sæti í fyrra voru dómarar og spiluðu tvö lög við mikla hrifningu allra viðstaddra.