Árshátíð NMB

Lilja Ólafsdóttir Fréttir

Árshátíð Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar (NMB) var haldin hátíðlega í gær. Veislustjórinn var Pétur Örn Guðmundsson eða Pétur Jesú eins og hann er oft kallaður og fórst honum það verkefni vel úr hendi. Veisluföngin komu frá Galito á Akranesi eins og undanfarin ár og alltaf jafnmikil ánægja með matinn frá þeim. Ekki var annað að sjá en að nemendur og starfsfólk skólans skemmtu sér konunglega yfir borðhaldi og skemmtiatriðum og þá sérstaklega góðu myndbandi sem nemendur settu saman í tilefni dagsins sem og tónlistaratriði frá Jóhannesi Magnússyni, en hann flutti frumsamið lag á píanó. Stjórn NMB og skemmtinefndin stóðu sig afspyrnu vel í undirbúningi fyrir árshátíðina og fá þau mikið lof í lófa. Kvöldinu lauk svo með dansleik. Foreldrar tóku virkan þátt í kvöldinu og berum við þeim miklar þakkir fyrir.