Brautskráning 2026

Bragi Þór SvavarssonFréttir

Föstudaginn 29. maí voru 44 nemendur brautskráðir frá Menntaskóla Borgarfjarðar. Þetta er mesti fjöldi sem hefur brautskráðst að vori  frá MB

Ernir Daði nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema, Erni var tíðrætt um þá stemmingu og manneskjulegu menningu sem væri í MB.

Ernir sagði „Hér höfum við fengið að prófa okkur áfram, fara út fyrir þægindarammann, mistakast, læra af reynslunni, gera betur, enn betur og aftur. Þroskast sem einstaklingar og hópur. ,,Mennt er máttur“ höfum við oft heyrt sagt. En menntun snýst ekki um að verða MEIRI maður heldur meiri MAÐUR! Við lifum á tímum hraðra breytinga en eitt er það sem við verðum aldrei hafin yfir og það er mennskan. Ræktun mennskunnar er hjartað í MB.  „

Að venju var utanaðkomandi aðila boðið að vera með gestaávarp við brautskráningu en að þessu sinni var það Guðni TH. Jóhannesson fyrrverandi forseti og nú prófessor við HÍ sem flutti erindið. Guðni talaði beint til nemenda og hvatti þau til að taka óhrædd móti næstu áskorunum og muna að lífið tekur breytingum og við með. Stefnum að því að gera vel og vera glaður með það sem maður tekur sér fyrir hendur.

Ávarp tíu ára stúdents var í höndum Ísaks Sigfússonar. Hann minnti nemendur á að það væri í lagi að ákveða ekki næstu skref strax, reyna ýmislegt og læra af því. Hann minntist veru sinnar í MB með hlýju og þakkaði fyrir að skólinn hafi veitt öllum tækifæri til að vera eins og þeir voru.  Hann þakkaði Lilju S. Ólafsdóttur sérstaklega fyrir hvernig hún studdi hann og aðra í gegnum námið með leiðbeinandi festu.

Bragi Þór Svavarsson skólameistari ávarpaði nýstúdenta í lok athafnar þar sem hann óskaði þeim gæfu og gengis og hvatti nemendur til áframhaldandi góðra verka. Bragi sagði „með tímanum verður maður kannski síður sannfærður um að það mikilvægasta í lífinu sé að vera alltaf bestur. Ég held að það sem skipti meira máli sé að vera sannur og leggja sig fram af heilindum og læra að mæta lífinu eins og það er. Hann nýtti einnig tækifærið til að þakka starfsfólki skólans fyrir góð störf. „Skóli er aldrei sterkari en fólkið sem myndar hann, og það er mín einlæga sannfæring að Menntaskóli Borgarfjarðar hafi á að skipa einstaklega öflugu starfsfólki sem mætir verkefnum sínum af fagmennsku, metnaði og ekki síður hlýju“

Verðlaun fyrir bestan námsárangur á stúdentsbraut hlaut Eyrún Freyja Andradóttir og fékk fyrir það viðurkenningu frá Arion banka.

Við upphaf athafnar í dag þá var Lilja S. Ólafsdóttir núverandi aðstoðarskólameistara þökkuð störf sín, en hún lætur af störfum sem aðstoðarskólameistari við lok þessa skólaárs.  Skólameistari þakkaði Lilju hennar óeigingjarna starf síðustu ára og í lokin kom einn fulltrúi frá hverjum útskriftar árgangi (2009-2026) og færði henni eina rós sem gera samtals 17 rósir. Falleg stund og verðskulduð.

Verðlaun og viðurkenningar

Eftirtaldir útskriftarnemar fengu verðlaun og viðurkenningar við brautskráningu

Hedí Sólbjört Valdimarsdóttir  fékk verðlaun fyrir góðan námsárangur í dönsku, frá Danska Sendiráðinu.

Eyrún Freyja Andradóttir  fékk verðlaun frá Kaupfélagi Borgfirðinga fyrir góðan námsárangur í félagsgreinum. Eyrún fékk verðlaun fyrir vandað lokaverkefni frá Menntaskóla Borgarfjarðar, verðlaun fyrir góðan námsárangur í íslensku frá Sögufélaginu, hún hlaut Menntaverðlaun Háskóla Íslands. Að lokum fékk Eyrún verðlaun fyrir besta árangur á stúdentsprófi og það er Arion banki sem veitir þau verðlaun

Friðjón Haukur Kristjánsson fékk verðlaun Menntaskóla Borgarfjarðar er byggja á einkunnarorðum skólans, sjálfstæði, færni, framfarir sem og verðlaun fyrir vandað lokaverkefni.

Hugrún Harpa Ólafsdóttir fékk verðlaun fyrir góðan árangur í íþróttagreinum, verðlaunin eru veitt af Sjóvá

Sunneva Dís Breiðfjörð Freysdóttir  fékk verðlaun Háskólans í Reykjavík fyrir góðan árangur í raungreinum.

Guðmundur Bragi Borgarsson, Guðný Óladóttir, Ernir Daði Arnberg Sigurðsson og Marta Lukka Magnúsdóttir fengu öll verðlaun fyrir frábært starf í þágu nemenda, gefandi er Borgarbyggð