Brautskráning nemenda frá MB

Ritstjórn Fréttir

Þorkell27 nemendur voru brautskráðir við hátíðlega athöfn frá Menntaskóla Borgarfjarðar þann 6. júní. Lilja S. Ólafsdóttir aðstoðarskólameistari flutti annál skólaársins, Páll S. Brynjarsson fráfarandi sveitarstjóri flutti hátíðarræðu og Lilja Hrönn Jakobsdóttir talaði af hálfu útskriftarnema. Tónlistarflutningur var í umsjá útskriftarnema og Jónínu Ernu Arnardóttur píanóleikara. Kolfinna Jóhannesdóttir skólameistari brautskráði nemendur og ávarpaði þá í lokin. Í máli hennar kom meðal annars fram að hún lætur nú af starfi skólameistara til þess að taka við starfi sveitarstjóra Borgarbyggðar.

Á myndinni er dux scolae Þorkell Már Einarsson, stúdent af náttúrufræðibraut, en hann hlaut lokaeinkunnina 9.33. Semidux var Tinna  Sól Þorsteinsdóttir, stúdent af félagsfræðabraut.

Aðrir útskriftarnemar eru:

Af félagsfræðabraut: Alexander Jarl Ríkharðsson, Alexandra Rós Jóhannesdóttir, Áslaug María Agnarsdóttir, Bjarki Pétursson, Davíð Ásgeirsson, Eva María Eiríksdóttir, Eyrún Baldursdóttir, Hera Hlín Svansdóttir, Íris Ragnarsdóttir Pedersen, Jóhannes Magnússon, Kolbrún Tara Arnarsdóttir, Kristín Björg Waage, Lilja Hrönn Jakobsdóttir, María Erla Finnbjörnsdóttir og Pétur Már Jónsson.

Af náttúrufræðibraut: Anton Freyr Arnarson, Bárður Jökull Bjarkarson, Daði Freyr Guðjónsson, Pavle Estrajher, Pétur Freyr Sigurjónsson, Sigurbjörg Rós Sigurðardóttir og Sveinn Jóhann Þórðarson.

Sigursteinn Orri Hálfdánarson útskrifaðist með viðbótarnám til stúdentsprófs.

Af starfsbraut útskrifuðust Helga Björg Hannesdóttir og Kristinn Rafn Erlingsson.