Comeniusarhópur í heimsókn í MB

Ritstjórn Fréttir

Vikuna 8 – 15 maí settu 36 erlendir gestir svip sinn á Borgarnes og skólastarfið í MB. Þetta voru nemendur og kennarar frá Hollandi, Tyrklandi, Þýskalandi og Portúgal sem tóku, ásamt nemendum og kennurum í MB þátt í Comeniusarverkefninu „Migration and cultural influences“. Auk málþings sem haldið var í skólanum síðastliðinn miðvikudag, voru niðurstöður úr verkefnavinnu nemenda kynntar en þar kom m.a. í ljós að aðstæður innflytjenda í Evrópulöndum eru að mörgu leyti ekki nógu góðar. Niðurstöður málþings voru m.a. þær að fjölmiðlar varpa oft á tíðum villandi ljósi á málefni innflytjenda og almennt skortir á fræðslu og skilning heimaþjóðarinnar. Gagnkvæm aðlögun er nauðsynleg til að farsæl samskipti eigi sér stað á milli innflytjenda og innfæddra.

Einnig ferðaðist hópurinn nokkuð, helstu perlur Borgarfjarðar voru skoðaðar, veitingaflóra bæjarins smökkuð og ýmislegt fleira.
Verkefni sem þetta eykur verulega persónuþroska nemenda, þeir kynnast nýjum siðum og venjum og ekki síst fólki með ólíka siði þeirra eigin. Verkefnið heldur áfram næsta vetur en þá fá þátttakendur í verkefninu tækifæri til að fara til Hollands eða Portúgal en því lýkur þar í maí á næsta ári.
Aðstandendum verkefnisins langar að þakka Nettó, Bónus, Brúðuheimum, Landnámssetrinu og Hópferðum Sigga Steina Gulla fyrir gott samstarf en ekki síður þeim foreldrum sem tóku erlenda nemendur að sér þessa vikuna.

zp8497586rq